Bæjarferð og fleira!
- May 30, 2016
- 1 min read
Síðastliðna daga höfum við unnið mjög vel, við erum búnar með kynninguna okkar, klippa myndbandið með viðtalinu og erum langt komnar með þær myndir sem verða á básnum okkar. Í dag fórum við niður í bæ, þar fórum við á Te og kaffi og fengum okkur frappó, við fórum einnig í heimsókn í Tjarnarskóla að hitta vinkonu okkar og gengum um miðbæinn og spurðum almenning um Colosseum. Diljá og Karen fóru líka að skoða sinn verðandi menntaskóla (vonandi) - MR.








Comments